Killer Queen var stofnuð í þeim tilgangi að leika
eina kvöldstund á Græna hattinum. Þetta var 2009.
Síðan þá hefur bandið notið þess að gera þessum
ótrúlega lagabanka Queen hátt undir höfði með yfir
45 tónleikum fyrir fullum sölum og jafnvel dalnum í
Eyjum.
Ekki missa af þessu krakkar mínir - We will rock you.
Killer Queen leikur á upphafskvöldi Hammondhátíðar
2020, fimmtudaginn 23. apríl.
Between Mountains var stofnuð af Kötlu Vigdísi og
Ásrósu Helgu en þær bjuggu þá hvor í sínum firðinum á Vestfjörðum og
stunduðu nám á Ísafirði. Hljómsveitin sigraði Músíktilraunir árið
2017.
Núna fer Katla Vigdís fyrir bandinu og semur hún sjálf öll lög og
texta.
Með Kötlu spila bróðir hennar, Valgeir Skorri Vernharðsson á
trommur, Ásrós Helga Guðmundsdóttir á hljómborð og Vernharður
Jósefsson pabbi hennar á bassa.
Það má með sanni segja að hér sé á ferð gríðarlega hæfileikarík ung
stúlka og platan hennar, Between Mountains, sem kom út í haust hefur
hlotið frábærar viðtökur.
Between Mountains leikur á föstudagskvöldi Hammondhátíðar 2020, 24.
apríl.
Norðlenska tríóið 200.000 naglbítar var stofnað árið 1993.
Upphaflega hét hljómsveitin Gleðitríóið Ásar og hún sigraði í
Glerárvision á Akureyri árið 1993. Gleðitríóið Ásar varð síðar Askur
Yggdrasils en nafnið 200.000 naglbítar var að lokum tekið upp.
Nafnið kemur úr Atómstöðinni eftir Halldór Laxness.
Hljómsveitin hefur gefið út þrjár breiðskífur, þá síðustu árið 2003.
Árið 2008 gaf sveitin út tónleikaplötu sem tekin var upp með
Lúðrasveit verkalýðsins. Sveitin hefur gefið út allmargar smáskífur
síðan síðasta breiðskífa kom út þannig að hver veit nema ný
breiðskífa líti dagsins ljós á næstu misserum.
Það eru fáar sveitir jafn öflugar og gefandi á sviði og við getum
lofað brjáluðu stuði þegar þessir herramenn mæta á Hammondhátíð. Við
hlökkum allavega sjúklega mikið til.
200.000 naglbítar leika á föstudagskvöldi Hammondhátíðar 2020, 24.
apríl.
Meðlimir:
Vilhelm Anton Jónsson - söngur og gítar
Kári Jónsson - bassi
Benedikt Brynleifsson - trommur
Strákarnir í Coney Island Babies hittust fyrst 7.
febrúar 2004. Einu mennirnir í bænum sem allir áttu snjáð eintak af
Ocean Rain með Echo and the Bunnymen í plötuskápnum. Undir
þokumettuðum himni, í kjallara í Neskaupstað, hófu þeir æfingar,
hafa ekki enn hætt og hafa fengið byr undir báða vængi – eru
byrjaðir að æfa uppi í risi...
Þeir staðfestu tilvist sína með útgáfu plötunnar Morning to Kill
árið 2012 og næsta plata er væntanleg síðar á þessu ári, með
hækkandi sól og lækkandi vaxtastigi.
Þeir lýsa sjálfum sér sem „indí-bandi“, innblásið af þungum og
þéttum takti hinnar norðfirsku öldu og tregafullri tilvist hins
miðaldra nútímamanns.
Coney Island Babies leikur á laugardagskvöldi Hammondhátíðar
2020, 25. apríl.
Meðlimir:
Geir Sigurpáll Hlöðversson - söngur og gítar
Guðmundur Höskuldsson - gítar
Hafsteinn Már Þórðarson - bassi
Jón Knútur Ásmundsson - trommur
Jón Ólafsson - hammondorgel
Við erum algerlega í skýjunum með að geta boðið gestum
Hammondhátíðar upp á eina stærstu hljómsveit Íslandssögunnar í annað
sinn, en Nýdönsk spilaði síðast á Hammondhátíð árið 2013. Síðan þá
hefur fjölmargt á daga sveitarinnar drifið, m.a. tvær breiðskífur og
fjölmargir tónleikar, en tónleikar Nýdönsk þykja með þeim vönduðustu
sem völ er á hér á landi. Þar er sannarlega engu logið.
Smellir þessarar hljómsveitar eru orðnir svo margir að of langt mál
væri að telja þá alla upp hér en við getum með sanni sagt að fáar
íslenskar hljómsveitir hafa yfir jafn stórum og fjölbreyttum
lagalista að ráða. Á sínu 33. aldursári hefur hljómsveitin aldrei
verið ferskari og þeir bíða í ofvæni eftir að hitta gesti
Hammondhátíðar á ný.
Nýdönsk leikur á laugardagskvöldi Hammondhátíðar 2020, 25. apríl.
Meðlimir:
Björn Jörundur Friðbjörnsson - söngur
Daníel Ágúst Haraldsson - söngur
Jón Ólafsson - hammondorgel
Stefán Hjörleifsson - gítar
Ólafur Hólm Einarsson - trommur
Ingi Skúlason - bassi
Eyþór Ingi er án efa einn af okkar fremstu söngvurum
í dag. Hann hefur einnig getið sér gott orð fyrir að vera mögnuð
eftirherma.
Eyþór Ingi er uppalinn á Dalvík og vakti fyrst verðskuldaða athygli
árið 2008 þegar hann sigraði í sjónvarpsþættinum Bandið hans Bubba á
Stöð 2, aðeins 18 ára gamall.
Eyþór Ingi hefur síðan komið fram með ýmsum hljómsveitum, meðal annars með proggsveitinni Eldberg sem gaf út sína fyrstu plötu 2011 og hinni
goðsagnakenndu Todmobile. Síðustu ár hefur hann einnig verið að gera
góða hluti með hljómsveit sinni, Rock Paper Sisters.
Eyþór kom til okkar á Hammondhátíð 2014 þar sem hann söng bæði með
Skonrokk og Todmobile. Við erum því gríðarlega spennt að taka á móti
honum aftur.
Eyþór Ingi leikur á lokatónleikum Hammondhátíðar 2020, sunnudaginn
26. apríl.