FORSÍÐA | UM HÁTÍÐINA | UPPLÝSINGAR | MIÐASALA | 2024 | 2023 | 2019 | 2018 | 2017 | 2016 | 2015 | 2014 | 2013 | 2012

 


LISTAMENN HAMMONDHÁTÍÐAR 2015




AMABADAMA


AmabAdamA er lífleg hljómsveit með meiru og á það bæði við lagasmíðar þeirra og sviðsframkomu. Sveitin hefur starfað í núverandi mynd frá því um vorið 2013 og er óhætt að segja að hún hefur skapað sér sess sem framvarðasveit íslensku reggísenunnar.

Platan Heyrðu mig nú, sem kom út sl. haust hefur fengið frábæra dóma og lögin Gaia, Það sem þú gefur, Eldorado og síðast en ekki síst Hossa Hossa hafa heyrst ótt og títt á öldum ljósvakans. Síðastnefnda lagið var í 2. sæti yfir mest spiluðu lög ársins 2014 á Rás 2.


Meðlimir:

Steinunn Jónsdóttir - söngur
Gnúsi Yones - söngur
Salka Sól - söngur
Andres Xavier Panunto - bassi
Ingólfur Arason - gítar
Höskuldur Eiríksson - trommur
Ellert Björgvin Schram - hljómborð










KIRIYAMA FAMILY


Kiriyama Family er eitt af áhugaverðustu ungu böndum landsins, en fyrsta plata sveitarinnar kom út árið 2012. Platan fékk frábæra dóma og lögin Weekends, Heal og Sneaky boots nutu mikilla vinsælda.

Ný plata er væntanleg frá þeim á árinu og fyrsta smáskífa plötunnar, Apart, kom út í fyrra og var 3. mest spilaða lag ársins á Rás 2. Sveitin er rómuð fyrir frábæran flutning á tónleikum, gífurlega stemmningu og almenna gleði.

Meðlimir:

Bassi Ólafsson - Trommur
Bjarni Ævar Árnason - Hljómborð
Guðmundur Geir Jónsson - Gítar, bassi og hljómborð
Hulda Kristín Kolbrúnardóttir - Söngur
Karl Magnús Bjarnarson - Söngur, gítar bassi og hljómborð
Víðir Björnsson - Gítar, bassi og hljómborð








PRINS PÓLÓ


Heimamaðurinn Svavar Pétur Eysteinsson, Prins Póló mun að sjálfsögðu koma fram á Hammondhátíð ásamt Hinni konunglegu hirð. Vinsældir hljómsveitarinnar hafa verið gífurlegar síðustu misserin, platan Sorrí sem kom út árið 2014 hefur rakað að sér verðlaunum og viðurkenningum og var nú síðast valin plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum.

Lögin Tipp topp, Bragðarefir, Hamstra sjarma og Fallegi smiðurinn af plötunni Sorrí hafa notið mikilla vinsælda auk lagsins París norðursins, sem hlýtur að teljast einn stærsti smellur áratugarins.

Það er sérstaklega ánægjulegt að bjóða upp á þessa hljómsveit, "beint frá býli", Karlsstöðum í Berufiði.

Meðlimir:

Prins Póló - söngur og gítar
Berglind Häsler - hljómborð, söngur
Kristján Freyr Halldórsson - trommur
Benedikt Hermann Hermannsson - bassi
Alex Flex Árnason - hljóðmeistari








JÓNAS SIG. & RITVÉLAR FRAMTÍÐARINNAR


Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar eru án nokkurs vafa eitt rómaðasta tónleikaband landsins. Stemmningin sem myndast á tónleikum bandsins er engu lík, sumir vilja líkja henni við trúarlega upplifun. Jónas Sigurðsson hefur notið mikilla vinsælda síðustu árin, gefið út þrjár plötur sem allar hafa hlotið mikið lof gagnrýnenda. Svo virðist sem allt sem hann snertir verði að gulli.

Hamingjan er hér, Allt er eitthvað, Hleypið mér út úr þessu partýi, Ofskynjunarkonan, Hafið er svart, Þyrnigerðið og Baráttusöngur uppreisnarklansins á skítadreifurunum eru meðal laga sem allir Íslendingar kannast við og nú nýlega tyllti Jónas sér á toppinn á vinsældarlista Rásar 2 með lagið Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá.

Þegar Ritvélar framtíðarinnar sameinast síðan Jónasi á sviði verður til einhver óútskýranlegur kraftur sem lætur engan ósnortinn.

Fram koma:
Jónas Sigurðsson - gítar, söngur
Kristinn Snær Agnarsson - trommur
Ingi Björn Ingason - bassi
Snorri Sigurðarson - trompet
Stefán Örn Gunnlaugsson - hammond
Rósa Guðrún Sveinsdóttir - söngur, saxófónn
Steinar Sigurðarson - saxófónn
Ása Berglind Hjálmarsdóttir - trompet







BUBBI OG DIMMA



Rokk-kóngur Íslands og ein vinsælasta þungarokksveit landsins um árabil leiða saman hesta sína og lög Utangarðsmanna og Das Kapital fá að hljóma sem aldrei fyrr.

Bubbi stofnaði hljómsveitina Utangarðsmenn árið 1979 með Mike og Danny Pollock og þeir fengu með sér Magnús Stefánsson og Rúnar Erlingsson. Platan Geislavirkir kom út í nóvember 1980 og var tímamótaverk í íslenskri rokksögu. Á plötunni voru til dæmis lögin Hiroshima og Kyrrlátt kvöld. Hljómsveitin Das Kapital starfaði í tæp 2 ár og gaf út plötuna Lily Marlene sem inniheldur meðal annars lögin Blindsker og Leyndarmál frægðarinnar og Das Kapital talin ein helsta költ sveit rokksins.

Meðlimir:
Bubbi Morthens - söngur
Birgir Jónsson - trommur
Ingó Geirdal - gítar
Silli Geirdal - bassi
Stefán Jakobsson - gítar, söngur


LILI MARLENE

GEISLAVIRKIR









MAGGI EIRÍKS OG PÁLMI GUNNARS
ÁSAMT ÞÓRI ÚLFARS


Þá Magga Eiríks og Pálma Gunnars þarf ekki að kynna. Við ætlum nú samt að gera það ef vera skyldi að einhver þekki ekki til þeirra. Þeir tveir mynda hryggjarstykkið í hinni sígildu hljómsveit Mannakornum, sem hefur verið starfandi frá árinu 1974. Mannakorn gaf í fyrra út plötuna Í núinu, á 40 ára starfsafmæli sveitarinnar og fékk platan frábæra dóma.

Sennilega myndi þessi heimasíða ekki duga til að lista upp allar þær perlur sem þessir tveir hafa samið og sungið í gegnum tíðina, bæði með Mannakornum og í sitthvoru lagi, ýmist einir og sér eða með öðrum. Pálmi gerði t.d. garðinn frægan með Brunaliðinu og samstarf Magnúsar og KK er bæði langt og farsælt.

Þessum heiðursmönnum til halds og trausts verður sjálfur Þórir Úlfarsson sem sextán ára gamall spilaði í fyrsta skipti með Mannakornum og hefur leikið með þeim reglulega síðan. Þórir hefur einnig leikið með mörgum af þekktustu hljómsveitum og listamönnum landsins og nægir þar að nefna Trúbrot, Hljóma, Björgvin Halldórsson, Pál Rósinkranz, Eirík Hauksson og marga fleiri.

Það er okkur mikill heiður að bjóða upp á þessa snillinga á Hammondhátíð.







UPPLÝSINGAR UM MIÐASÖLU


 
 

Hafa samband