MIÐASALA Á HAMMONDHÁTÍÐ 2024
Fyrstu tvær vikurnar verður einungis hægt að kaupa heildarpassa.
Hvað kostar miðinn?
Heildarpassi á Hammondhátíð 2024 kostar
kr.
17.490.
Hann veitir þér aðgang að öllum tónleikum hátíðarinnar, fimmtudag,
föstudag, laugardag og sunnudag.
Einnig verður hægt að kaupa miða á staka tónleika frá og með
mánudeginum 25. mars:
Fimmtudagur: 7.490.-
Föstudagur: 7.490.-
Laugardagur: 7.490.-
Sunnudagur: 7.490.-
Hvar kaupi ég
miða?
Miðasala á Hammondhátíð 2024
er á
midix.is.
Einnig verður hún við inngang á tónleikadögum.
ÞAÐ SEM ÞÚ ÞARFT AÐ VITA:
Aldurstakmark á tónleika fimmtudags, föstudag og laugardags er 18
ár.
Ef ég vil kaupa miða á tvo eða þrjá
viðburði Hammondhátíðar?
Midix.is
býður uppá körfukaup, hægt er að setja miða á mismunandi viðburði í
körfu og greiða í einu lagi.
Er hægt að fá miðann endurgreiddan?
Nei, miðar fást ekki
endurgreiddir.
Hvernig nálgast ég
miðann?
Bæði
er hægt að fá miðann sendan heim í pósti eða prenta hann út að
pöntun lokinni. Á
tónleikadögum verður hægt að nálgast armbönd (hammbönd)
í Bakkabúð milli 15:00 og 17:00. Þið mætið með staðfestingu á
miðakaupum og fáið hammbönd í staðinn. Það er sannkallað win-win!
Það er þjóðráð að næla sér í bönd að deginum til því það minnkar
biðröðina við innganginn á tónleikadag.
|